
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er stofnuð 10. desember 1997. Mikil bylting varð í menntunarmálum á Suðurnesjum við stofnunina og í kjölfarið varð aðgengi almennings að námskeiðum meira og aukið svigrúm skapaðist til sí- og endurmenntunar. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og námsframboðið tekið mið af þörfum hverju sinni.
Meginhlutverk Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að efla endur- og símenntun Suðurnesjamanna og auka menntun og lífgæði íbúa svæðisins og efla þannig einstaklinga og atvinnulíf.
Miðstöðin leggur metnað sinn í að veita ráðgjöf og persónulega þjónustu og umhverfi til náms þar sem einstaklingum líður vel.








Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum