Hljóðsmiðja
MSS býður upp á námskeið í hljóðsmiðju í samstarfi við upptökuverið Geimstein. Á námskeiðinu er farið í gegnum grundvallaratriði hljóðvinnslu og raunverkefni unnin í upptöku og hljóðvinnslu samstarfi við Geimstein.

Megintilgangur námsins er að veita nemendum innsýn inn í heim hljóðmannsins, hvort sem er starfsmanns í upptökuveri eða sem hljóðmanns í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi eða við lifandi tónlistarflutning.
Í námskeiðinu er kennd einföld hljóðvinnsla samkvæmt verklýsingum og fyrirmælum verkstjóra. Kennt er að taka upp talmál og tónlist, klippa upptöku, laga galla í upptöku og búa til flutnings í viðeigandi hljómflutningsbúnaði.
Verkefni eru unnin undir verkstjórn en þó með nokkru sjálfsforræði.
Verkefni eru unnin undir verkstjórn en þó með nokkru sjálfsforræði.
Námið er 120 kest (80 klst).
Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur í síma 412-5953 eða á netfangið hjorleifur@mss.is

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum