Járn- og trésmíði

Járn- og trésmiðja
 
MSS býður upp á smiðju í járn- og trésmíði í samstarfi við Atafl og Daníel Sigmundsson (www.1x6.is).
Atafl hefur í mörg ár verið leiðandi fyrirtæki í allri smíði á Suðurnesjum og hefur á að skipa frábærri kennsluaðstöðu og tækjum til námsins.
Daníel Sigmundsson hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilega hönnun úr tré og þá sérstaklega endurnýtingu gamals timburs. Gistiheimili hans 1x6 hefur hlotið einróma lof fyrir skemmtilega hönnun en það er allt innréttað úr gömlum viði. Einnig hefur Daníel hannað innréttingar og vinnur núna að smíði  leikmyndar fyrir sjónvarpsupptökur á Ávaxtakörfunni.

Námið byggir á því að leyfa þátttakendum að kynnast helstu þáttum í járn- og trésmíði undir handleiðslu fagaðila. Farið er í þætti eins og efnisfræði og endurvinnslu með tilliti til umhverfisfræða.
Þátttakendur vinna raunverkefni undir handleiðslu leiðbeinenda og geta blandað saman úr báðum smiðjum ef þeir kjósa svo. Námið er mikið verklegt og er 120 kennslustundir og tekur um 6 vikur.

Á meðan á náminu stendur vinna þátttakendur verkdagbók sem þeir skila inn í lokin til námsmats.
Nánari upplýsingar í síma 412-5953 / 421-7500 eða hjorleifur@mss.is