
Matarsmiðja: Matreiðsla umgengni við matvæli og starfsþjálfun.
Námsþættir: Sjálfstyrking. Þjónusta. Matreiðsla.
Starfsþjálfun í fyrirtækja og skólamötuneytum og veitingahúsum í Reykjanesbæ.
Tímar: 70 kennslustundir í námskeiði auk 8 – 10 dagar í starfsþjálfun.
Námskeiðslýsing
Í námskeiðinu verður farið í helstu atriði starfa í mötuneyti svo sem þjónustu og gæðaskoðun, einfalda matreiðslu og fjallað verður um lífsskilyrði örvera, helstu matarsjúkdóma og aðferðir til að koma í veg fyrir þá með réttri meðferð matvæla.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist þekkingu á grunnatriðum í umgengni við matvæli s.s einfalda matreiðslu, upphitun, æskilegt hitastig. Framreiðslu matar, varðveislu matvæla. Fjallað er um næringargildi og og samsetningu algengustu matvæla. Nemendur æfa sig í framreiðslu einfaldra matseðla og að áætla magn. Farið er í borðsiði og þau uppeldislegu tækifæri sem felast í borðhaldi. Nemendur fá fræðslu og þjálfun í umgengni við að halda vinnusvæðum og búnaði hreinum og læra að þekkja og meðhöndla algengustu hreinsiefni.
Kennsla fer fram frá kl. 9 til 13 kl. mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga í alls fjórar vikur.
Í fyrstu til þriðju viku verður farið í sjálfstyrkingu, færnimöppu og ferliskrá. Farið verður í þjónustu og gæðamál lítilla mötuneyta. Í matreiðslutímunum, sem verða tvisvar í viku, verður farið í matreiðslu á einföldum og ódýrum mat og upphitun á tilbúnum matvælum. Geymslu og frágang matvæla. Hópnum verður skipt upp í tvennt fyrir matreiðslutímanna.
Í fjórðu og fimmtu viku námskeiðsins eru fara þátttakendur í starfsþjálfun (skylda) í litlum skóla eða fyrirtækjamötuneytum, til að kynnast umgengni og framreiðslu matvæla eigin hendi.
Sjöttu vika kemur hópurinn saman að nýju og farið yfir reynslu sem fengin var á vettvangi og hún nýtt til að skoða framtíðina.
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Jakobsson í síma 412-5947 eða á netfangið kristinnj@mss.is








Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum