Umhverfissmiðja
MSS býður upp á námskeið í umhverfissmiðju í samstarfi við LBHÍ. Megin kennsluefni smiðjunnar er hellu- og steinalögn en jafnframt fá nemendur innsýn inn í umhirðu garða, þökulögn og gróðursetningar. Kennsla er mest megni í formi verklegra æfinga auk bóknáms. Nemendur halda verkdagbók allan tímann og er hún hluti af mati námsins inn til LBHÍ auk þess sem nemendur halda kynningu á lokaverkefni sínu.

Námskeiðið er tvískipt. Í námskeiði I er kennd gerð verkdagbóka og mikilvægi hennar. Farið er í flatarmálsmælingar, gerð og lestur grunnteikninga, verklýsingar og verkáætlun og raunverkefni unnið í hellu- og steinalögn.
Í námskeiði II er kennd steina- og hellulögn með vatnshalla og mynstri ásamt innsýn inn í almenna umhirðu garða, gróðursetningu og þökulögn. Farið er nánar í tól og tæki viðkomandi verks, verklag, undirbúning verks og raunverkefni unnið frá upphafi til enda og frágangur í verklok.
Námskeið I og II eru samtals 120 kest (80 klst).
Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur í síma 412-5953 eða á netfangið hjorleifur@mss.is
LBHÍ metur námskeiðið til eininga inn í nám við Garðyrkjuskóla Ríkisins.
LBHÍ metur námskeiðið til eininga inn í nám við Garðyrkjuskóla Ríkisins.

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum