3. júlí 2019

Vilt þú starfa á kraftmiklum og skemmtilegum vinnustað?

Vilt þú starfa á kraftmiklum og skemmtilegum vinnustað?

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum leitar að framúrskarandi starfsmanni sem vill starfa með okkur í Samvinnu starfsendurhæfingardeild.

 Starfssvið viðkomandi nær m.a. yfir:

  • ráðgjöf og stuðning við einstaklinga í starfsendurhæfingu
  • taka þátt í teymisvinnu sérfræðinga sem koma að starfsendurhæfingunni
  • gera og hafa umsjón með endurhæfingaráætlunum einstaklinga
  • skipulagning og umsjón með námskeiðahaldi og fræðslu
  • þátttaka í ýmsum verkefnum

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda
  • reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar
  • þekking og reynsla af atvinnulífinu
  • sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki

Skilyrði er að viðkomandi hafi einstaka þjónustulund, góða samskiptahæfileika, sé hugmyndaríkur og árangursdrifinn.

Umsóknir sendist til ina@mss.is  fyrir 5. ágúst næstkomandi.

Til baka í fréttir