
Tölvuskóli Suðurnesja.jpg)
Keilisbraut 77
Hús Listasmiðjunnar
Ásbrú (Vallarheiði)
899 4370
ragnar@infosec.is
Tölvuskólinn býður margvísleg tölvunámskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki á vorönn 2010
Byrjendanámskeið
Vinsælt námskeið, ætlað fólki á öllum aldri sem hefur litla eða enga tölvukunnáttu. Allar greinar eru kenndar frá grunni og farið rólega í námsefnið með miklum endurtekningum. Á þessu námskeiði er allt sem byrjandi þarf til að komast vel af stað og öðlast sjálfsöryggi við tölvuna.
Hefst þriðjudaginn 26. janúar og lýkur 9. mars. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum.
Boðið er upp á morgunnámskeið 9 – 12 og kvöldnámskeið 17 – 20.
Lengd: 58 kennslustundir. Verð kr. 44.000,-
Almennt tölvunám – fyrir lengra komna
Sérlega hagnýtt nám fyrir þá sem einhvern tölvugrunn hafa til að byggja á eða hafa einhverja reynslu af tölvuvinnu en vilja auka við hæfni sína og læra meira. Þetta er nám sem veitir þátttakendum góða tölvuþekkingu og þjálfun við að beita Office forritunum við lausn flóknari viðfangsefna.
Hefst mánudaginn 25. janúar og lýkur 8. mars. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum.
Boðið er upp á morgunnámskeið 9 – 12 og kvöldnámskeið 17 – 20.
Lengd: 58 kennslustundir. Verð kr. 49.000,-
Vefsíðugerð – grunnur
Námskeið sem hentar þeim sem vilja koma sér upp einfaldri heimasíðu og hentar vel byrjendum í vefsmíði. Námið er tvískipt og kennt er á tvö vinsæl forrit sem notuð eru við heimasíðugerð, photoshop og FrontPage.
Hefst miðvikudaginn 15. mars og lýkur 21. apríl. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum.
Boðið er upp á kvöldnámskeið 17 – 20.
Lengd: 45 kennslustundir. Verð kr. 52.000,-
PhotoShop
Grunnnámskeið í hinu geysivinsæla myndvinnsluforriti PhotoShop.
Hefst miðvikudaginn 15. mars og lýkur 29. mars. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum.
Boðið er upp á kvöldnámskeið 17 – 20.
Lengd: 22 kennslustundir. Verð kr. 28.000,-
FrontPage
Grunnnámskeið í vefsíðugerðarforritinu FrontPage
Hefst miðvikudaginn 7. apríl og lýkur 21. apríl. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum.
Boðið er upp á kvöldnámskeið 17 – 20.
Lengd: 22 kennslustundir. Verð kr. 28.000,-
Stafrænar myndavélar
Vinsælt og hagnýtt námskeið um öll grundvallaratriði stafrænna myndavéla og meðferð stafrænna mynda í heimilistölvunni. Vinsælt, ókeypis myndvinnsluforrit á netinu kynnt
Kennt er laugardagana 30. janúar og 6. febrúar frá 9 - 13.
Lengd: 12 kennslustundir
Verð kr. 15.000,-
Skráning og nánari upplýsingar hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í síma 421 7500.






Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum