Krossmóa 4 - 260 Reykjanesbæ - sími 420-2040 - fax 420-2041 - veffang: www.vinnueftirlit.is

 
 

Næstu námskeið:

Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á vinnustöðum - 7. og 8. mars.
Kennt er frá kl. 09:00 - 16:00. Námskeiðið fer fram í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4 í Reykjanesbæ.

 
Á námskeiðinu er m.a.  fjallað um eftirfarandi: 

 - Starf öryggistrúnaðarmanna og -varða
 - Lög og reglur
 - Hávaða á vinnustað
 - Birtu og lýsingu við vinnu
 - Inniloft og líðan fólks
 - Líkamlegir áhættuþættir
 - Félagslega og andlega áhættuþætti
 - Einelti, kynferðislega áreitni, streitu og kulnun
 - Hættuleg efni
 - Áhættumat
 - Vinnuslys og atvinnusjúkdóma

Skráning og nánari upplýsingar í síma 420-2040 frá kl 08:30 - 12:00 eða á netfangið reykjanes@ver.is.


 


Vinnueftirlitið á Suðurnesjum býður upp á fjölda námskeiða:

M.a. bóklegt nám sem veitir réttindi til æfinga og verklegs prófs á vinnuvélar:
- Frumnámskeið
- Byggingakrananámskeið
- Hleðslukrananámmskeið


Námskeið til beinna réttinda:
Námskeið um flutning hættulegra efna (4 námskeið)


Önnur námskeið:
Vinnueftirlitið býður upp á fjölda námskeiða um hin ýmsu svið vinnuverndar, s.s. námskeið vegna öryggistrúnaðarmanna og öryggisvarða.


Nánari upplýsingar má sjá á www.vinnueftirlit.is

Námskeiðin eru haldin eftir þátttöku hverju sinni.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 420-2040.



  • Framhaldsnámskeið í Vinnuvernd:
     
    Námskeið: Vinnuslys og vinnuslysarannsóknir.
     
    Fjallað er um orsakir og tíðni vinnuslysa, mikilvægi þess að skrá vinnuslys skipuleggja og miðlun upplýsinga vegna slysa.
    Einnig er fjallað um nýtingu slysaupplýsinga til forvarnastarfs. Kynntar verða aðferðir
    Vinnueftirlitsins við slysarannsóknir. Nemendur gera stutta rannsókn á vinnuslysi.
     
    Verður haldið 18.apríl n.k. frá kl.09-12. í húsnæði MSS að Krossmóa 4 260 Reykjanesbæ
     
     
     
    Námskeið: Öryggismenning á vinnustað:
     
    Miklar framfarir hafa náðst síðustu áratugi í “Efnislegu og tæknilegu öryggi” á vinnustöðum t.d. við hönnun vinnustaða, véla og tækja. Til þess að ná lengra í öryggismálum og fækka vinnuslysum enn frekar þarf að beita nýjum aðferðum. Það þarf að skoða sálræna og félagslega þætti í samspili við vinnuskipulag og vinnuumhverfi.
    Á þessu námskeiði er gerð grein fyrir því hvernig hægt er að innleiða öryggismenningu á vinnustað, þ.e. breyta hugsun og hegðun starfsmanna og stjórnenda.
     
    Verður haldið 18.apríl n.k. frá kl. 13 -16. í húsnæði MSS að Krossmóa 4 260 Reykjanesbæ.
     
    Skráning á námskeiðin er á heimasíðunni, valinn takkinn “Námskeið” ofarlega til vinstri á forsíðunni og síðan smellt á “Skráning á námskeið”lengst til hægri í annarri línu síðunnar sem þá birtist. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: margrét@ver.is  eða í síma: 420-2040.
     
     
    Frumnámskeið í stjórn og meðferð
     
    Lyftara með allt að 10 tonna lyftigetu
    Fjölnotatækja/smávéla, s.s. gröfur og ámokstursskóflur, allt að 4 tonna eigin - þyngd
    Dráttarvéla með tækjabúnaði
    Hleðslukrana með allt að 18 tm lyftigetu, körfukrana og steypudælukrana
    Valtara, útlagningarvéla (malbikunarvéla) og vegfræsara.
    verður haldið í húsnæði MSS að Krossmóa dagana 23,24 og 25 maí n.k. kl. 09:00 – 16:00 alla dagana
    Skráning í síma 420-2040 frá kl. 09:00 – 15:00 eða á netfang: margret@ver.is .