
Áhugasviðsgreining
Með áhugasviðsgreiningu eru fundin tengsl milli persónuleika og áhugamála annars vegar og starfsgreina hins vegar. Áhugasviðsgreining getur verið gagnleg ef einstaklingur er í vafa um hvað hann vill gera í framtíðinni en út úr greiningunni koma hugmyndir að starfssviðum sem er líklegt að einstaklingnum myndi líða vel í.
Ef þú ert ekki viss um hvað þú vilt gera í framtíðinni eða vilt fá staðfestingu á að þú sért á réttum stað í dag er áhugasviðsgreining kannski eitthvað fyrir þig.
Í boði eru tvær áhugasviðsgreiningar hjá MSS. Annars vegar er um að ræða áhugasviðsgreininguna Strong – sem er ein elsta og mest rannsakaða áhugasviðskönnun í heiminum. Milljónir manna víða um heim nota niðurstöður úr könnuninni til þess að auðvelda val á námi og starfi.
Hins vegar er áhugasviðsgreiningin Í leit að starfi (höfundur John Holland) sem er ein mest notaða áhugasviðskönnun á markaði í dag. Könnunin sem kom fyrst út árið 1970 hefur verið þýdd yfir á 16 tungumál.
Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Önnu Lóu Ólafsdóttur náms- og starfsráðgjafa í síma 421 7500 eða annaloa@mss.is.






Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum