Lestrarerfiðleikar fullorðinna

MSS leiðir átak þar sem einstaklingar sem telja sig eiga við lestrarerfiðleika að stríða geta fengið greiningu og ráðgjöf í framhaldi af því. Stéttarfélögin VSFK, VS, STFS og FIT koma að þessu átaki og niðurgreiða greiningu fyrir félagsmenn sína. 

Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Önnu Lóu Ólafsdóttur í síma 421 7500 eða annaloa@mss.is.