Náms- og starfsráðgjöf

MSS býður upp á náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga.
Náms- og starfsráðgjafi getur veitt: 
 - upplýsingar um nám og störf
 - aðstoð við að kanna áhugasvið og hæfni (áhugasviðsgreining)
 - upplýsingar um mögulegar námsleiðir og styrki
 - aðstoð við að setja markmið og útbúa námsáætlun
 - tækifæri til að setjast niður með hlutlausum aðila og skoða stöðu sína almennt

MSS býður upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa á vinnustöðum og ráðgjöf fyrir einstaklinga í húsnæði MSS.

Til að fá nánari upplýsingar um þjónustuna eða til að bóka viðtöl, áhugasviðsgreiningu eða kynningar á vinnustöðum er hægt að hafa samband við Önnu Lóu Ólafsdóttur náms- og starfsráðgjafa í síma 421 7500 eða annaloa@mss.is.