
Stafræn ljósmyndun fyrir byrjendur
Tímabil: 8. apríl 2010 - 6. júní 2010
Markmið: Leiðbeinandi: Ellert Grétarsson ljósmyndari.
Tímasetning: 7. apríl kl. 18:00.
Lýsing: Fræðsla fyrir byrjendur og þá sem eru skemmra á veg komnir.
Fjallað verður almennt um stafrænar myndavélar og tæknileg atriði með það að markmiði að þátttakendur læri að nýta betur möguleika myndavélarinnar. Farið verður yfir stillingar og virkni þeirra við mismunandi aðstæður, samspil hraða og ljósops, dýptarskerpu, ljósnæmi, ljóshita og fleira. Þeir þátttakendur sem vilja mega taka myndavélarnar með sér.
Þá verður farið í praktísk atriði ljósmyndunar og hvernig maður ber sig að við mismunandi viðfangsefni, s.s. landslagsmyndatökur, barnamyndatökur og portrett.
Fjallað verður um mikilvægi þess að vinna með myndirnar.
Markmið fræðslunnar er að auka skilning á tæknilegum atriðum ljósmyndunar sem geti reynst þátttakendum gott vegarnesti við iðkun þess skemmtilega og skapandi áhugamáls sem ljósmyndun er.
Verð: 5.000 kr.
Til bakaDeila á Facebook







Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum