
Jurtasmyrsli úr íslenskri náttúru
Tímabil: 3. júní 2010 - 10. júní 2010
Lýsing: Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir hefur síðustu tvö sumur verið með vinsæl námskeið í tínslu íslenskra lækningajurta samvinnu við MSS. Í þetta sinn ætlar hún að einnig að kenna þátttakendum að gera smyrsl úr jurtunum sem þeir tína.
Námskeiðið nær yfir tvo fimmtudaga. Í fyrra skiptið verður farið út í náttúruna að tína jurtir undir leiðsögn Ásdísar Rögnu eftir stuttan fyrirlestur. Í það skipti þurfa þátttakendur að vera klæddir eftir veðri, taka með sér ílát, skæri og hanska ef vill, einnig er gott að hafa með sér nesti og flórubók.
Seinna skiptið fer fram í MSS þar sem Ásdís Ragna kennir þátttakendum, á einfaldan hátt, að útbúa smyrsli úr jurtunum sem þeir tíndu vikuna áður og þeir taka með sér prufukrukku heim. Hægt er að taka þátt í öðrum hvorum hlutanum eingöngu.
Leiðbeinandi er Ásdís Ragna Einarsdóttir
Tími: 3. og 10. júní kl. 17.00 til 19.00.
Verð: 8.000 kr.
Til baka





Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum