Gimp myndvinnsluforrit

Tímabil: 15. apríl 2010 - 22. apríl 2010

Lýsing: 15 kennslustunda námskeið í notkun Gimp myndvinnsluforritsins, sem margir telja ekki síðra en hið þekkta Photoshop forrit. Stór kostur við að nota Gimp er að það er hægt að nálgast frítt á Internetinu, öfugt við Photoshop.
Í þessu námskeiði verður m.a. farið í eftirfarandi:
Stafræn myndataka og flutningur af myndavél yfir á tölvu.
Afritun mynda af Internetinu.
Skipulag gagnageymslu.
Myndvinnsla.
Hvað eru lög (Layers)?
Hvað eru pixlar?
Hvernig er mynd klippt út af bakgrunni og sett yfir á annan bakgrunn?
Hvernig breytir maður lýsingu og lit mynda?
Fleiri atriði sem skipta máli.

Kennt verður þrjá þriðjudaga kl. 16:00 til18:00
Leiðbeinandi: Páll Rúnar Pálsson

Verð: 11.500 kr.

Skrá á námskeið

Til baka

 

Deila á Facebook