
Google Apps: Tölvupóstur og dagatal
Tímabil: 10. febrúar 2010 - 10. febrúar 2010
Markmið: Grunnnámskeið í notkun á GMail tölvupóstforritinu og Google dagatalinu sem er fáanlegt frítt á netinu. Eiginleika GMail eru m.a, mikið geymslupláss svo þú þarft aldrei að eyða pósti , aðgangur að tölvupóstinum hvar sem þú kemst á netið, þú getur haft sama netfang alla ævi - þó þú skiptir um internetþjónustuaðila, innbyggt spjall með hljóði og mynd þannig að þú getur talaðu frítt til útlanda! Eiginleikar dagatalsins eru m.a að þú getur skoðað mörg dagatöl í einu, þú getur deilt dagatölum með öðrum, þú getur sent og fengið fundarboð, aðgangur að dagatalinu hvar sem þú kemst á netið - þ.á.m. úr farsímanum.
Lýsing: Einnig verða kynntir fleiri hlutar Google Apps vefþjónustunnar frá Google,: skjalavinnsla, einföld vefsíðugerð og hópsíður. Æskilegt er að nemendur séu nokkuð öruggir í tölvunotkun og internetnotkun. Kennarar eru Þóranna Jónsdóttir og Andri Ottósson frá fyrirtækinu Atmos, sem er vottaður þjónustuaðili fyrir Google Apps. 10. febrúar frá kl. 16:00 - 19:00.
Verð: 9.500 kr.
Til baka
.png)


Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum