
Gigtarnámskeið
Tímabil: 23. mars 2010 - 6. apríl 2010
Markmið: Fræðsla um helstu gigtarsjúkdóma, greiningu, einkenni og meðferð þeirra. Tekin verður fyrir hjúkrun gigtarfólks og áhrifaþættir eins og verkir, þreyta, svefn, lyf, jafnvægi hvíldar og hreyfingar. Farið verður yfir það hvernig sjúkraliðar geta nýtt sér sjúkraþjálfara til að auka þekkingu í tengslum við þjálfun og að viðhalda hreyfigetu fólks. Skoðað verður hvernig auðvelda má fólki eigin umönnun, þ.e persónulegar athafnir daglegs lífs, dagleg störf og beitingu handa. Síðan verður tekin fyrir áhrif langvinna sjúkdóma og afleiðingar á allt daglegt líf gigtarfólks.
Lýsing: Námskeiðið er unnið í samvinnu við Gigtarfélag Íslands Leiðbeinendur eru ýmsir sérfræðingar varðandi gigt og aðili frá Gigtarfélagi Íslands. Kennt er 22., 25. og 29. mars kl. 17:00 til 20:00
Verð: 17.500 kr.
Til bakaDeila á Facebook







Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum