
dk tölvubókhald
Tímabil: 8. apríl 2010 - 27. maí 2010
Lýsing: 40 kennslustunda námskeið í notkun dk fjárhags- og viðskiptamannabókhalds.
dk hugbúnaður ehf er íslenskt fyrirtæki sem hefur þróað fullkomið tölvubókhaldskerfi undir nafninu dk.
Þetta námskeið er góður grunnur til notkunar á dk. Kennd verða undirstöðuatriði dk fjárhags- og viðskiptamannabókhalds auk sölukerfis og birgðabókhalds.
Kennt verður að bóka reikninga og steft að því að fara frá byrjun til enda, þ.e. frá því fyrirtæki er stofnað og út eitt bókhaldstímabil. Kennd uppsetning á reikningum og öll skjöl sem þarf að bóka á því tímabili verða bókuð. M.a. verður farið í skráningar á færslum (fylgiskjölum) í dagbók, gerð VSK skýrslna og farið í helstu atriði sem hafa þarf í huga við tölvufært bókhald frá því gögn (t.d. reikningar) berast og þar til bókhaldið er tilbúið í hendur endurskoðanda.
Hver nemandi fær aðgang að bókhaldsforritinu gegn um RD (Remote Desktop) tengingu og útbýr ímyndað fyrirtæki sem hann vinnur með sín gögn í. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14:00 til 16:00..
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem ekki hafa notað dk áður.
Leiðbeinandi: Páll Rúnar Pálsson
Verð: 37.500 kr.
Til bakaDeila á Facebook







Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum