
Íslensk stafsetning
Tímabil: 13. október 2010 - 24. nóvember 2010
Lýsing: Námskeið fyrir þá sem vilja styrkja sig í stafsetningu og öðlast aukna færni í ritun. Gott námskeið fyrir alla, ekki síst þá sem eru með lesblindu.
Farið verður í stafsetningarreglur um stóra og litla stafi, n og nn reglur, y reglur, hv og kv reglur auk tvöfalda samhljóða eins og hvenær eiga að vera tvö g í orðum og hvenær eitt.
Námskeiðið getur einnig nýst þeim sem hafa ekki íslensku sem móðurmál en hafa náð góðum tökum á málinu.
Leiðbeinandi er Elín Sigríður Arnórsdóttir
Verð: 10.000 kr.
Til baka





Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum