Sterkari starfsmaður Sandgerði

Tímabil: 15. febrúar 2012 - 3. apríl 2012

Lýsing: Námsleiðin Sterkari starfsmaður - tölvur og samskipti, gefur góðan grunn í tölvu- og upplýsingatækni. Gott námskeið fyrir byrjendur í tölvu. Hér er farið í öll helstu tölvuforrit auk þess sem áhersla er lögð á sjálfstyrkingu, frumkvæði og eflingu í starfi og leik auk ýmissa annarra þátta.
Námið er 150 kennslustundir. Engin lokapróf eru tekin en námsmat fer fram með verkefnavinnu, æfingum og símati. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 12 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt verður eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins.
Áætlað er að kennsla hefjist um miðjan febrúar og næg þátttaka fæst. Kennsla fer fram siðdegis þrisvar sinnum í viku í Grunnskóla Sandgerðis.

Verð: 26.000 kr.

Skrá á námskeið

Til baka

 

Deila á Facebook