Hljóðsmiðja

Tímabil: 5. mars 2012 - 30. mars 2012

Lýsing: MSS býður upp á námskeið í hljóðsmiðju í samstarfi við upptökuverið Geimstein. Á námskeiðinu er farið í gegnum grundvallaratriði hljóðvinnslu og raunverkefni unnin í upptöku og hljóðvinnslu í samstarfi við Geimstein. Megintilgangur námsins er að veita nemendum innsýn inn í heim hljóðmannsins, hvort sem er starfsmanns í upptökuveri eða sem hljóðmanns í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi eða við lifandi tónlistarflutning. Í námskeiðinu er kennd einföld hljóðvinnsla samkvæmt verklýsingum og fyrirmælum verkstjóra. Kennt er að taka upp talmál og tónlist, klippa upptöku, laga galla í upptöku og búa til flutnings í viðeigandi hljómflutningsbúnaði.
Verkefni eru unnin undir verkstjórn en þó með nokkru sjálfsforræði.Hljóðsmiðjan er 120 kennslustundir (80 klst.). Kennt verður eftir samþykktri námskrá Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins. Mennta og menningarmálaráðuneyti hefur veit leyfi til að meta megi námið til allt að 10 einingum í framhaldskóla. Mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms hjá MSS.

Verð: 25.000 kr.

Skrá á námskeið

Til baka

 

Deila á Facebook