
Stígum skrefið
Tímabil: 7. september 2010 - 14. september 2010
Markmið: Hefur þig lengi dreymt um að fara í eigin rekstur, gengið með viðskiptahugmynd í maganum, en aldrei gert neitt í því? Fólki má skipta í tvo hópa; þá sem láta hlutina gerast og þá sem horfa á aðra láta hlutina gerast. Hvorum hópnum vilt þú tilheyra?
Skrefin frá hugmynd yfir í framkvæmd geta verið stór og virðast stundum óyfirstíganleg.
Á námskeiðinu verður bent á leiðir til þess að auðvelda einstaklingum að stíga skrefið og hrinda viðskiptahugmyndum sínum og fyrirætlunum í verk; láta verkin tala.
Lýsing: Námskeiðið er þrjú skipti og markmiðið er að í lok þess hafi þátttakendur í höndunum áætlun um þau skref sem þeir ætli að taka til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Frumkvöðlasetrið á Ásbrú og fer kennsla fram í Eldey, húsnæði Frumkvöðlasetursins. Í framhaldi af námskeiðinu getur fólk nýtt sér þjónustu Frumkvöðlasetursins á Ásbrú, en þar er hægt að fá handleiðslu, ráðgjöf, fræðslu, aðstöðu og stuðning við þróun og framkvæmd viðskiptahugmyndar
Tími: 7., 9. og 14. september frá kl. 17:00 til 20:00.
Leiðbeinandi: Kjartan Már Kjartansson
Verð: Nánar auglýst síðar
Námskeiðið er í samstarfi við Frumkvöðlasetrið á Ásbrú og haldið Eldey, húsnæði Frumkvöðlasetursins. Skráningar fara fram hjá MSS.
Verð: 13.500 kr.
Til baka





Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum