
Svæðisbundið leiðsögunám
Tímabil: 15. september 2012 - 10. maí 2013
Lýsing: Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 21 árs við upphaf námsins. Þeir þurfa að hafa stúdentspróf eða sambærilegt nám að baki ásamt því að hafa mjög gott vald á einu erlendu tungumáli, auk íslensku.
Nemendur þurfa að standast munnlegt inntökupróf í tungumáli að eigin vali áður en skólavist er heimiluð. Nemendur geta einnig valið íslensku sem sitt kjörmál og ef hún er þeirra móðurmál þurfa þeir ekki að þreyja inntökupróf.
Námsmat
Nemendur þurfa að fá a.m.k. sjö af tíu í einkunn í öllum fögum. Einkunnir samanstanda af skriflegum eða munnlegum verkefnum og prófum. Gert er ráð fyrir að nemendur mæti í allar vettvangs- og æfingaferðir.
Hluti námsins fæst metinn til hefðbundins leiðsögunáms svo þeir sem vilja geta komið síðar í Leiðsöguskólann og öðlast fullgild leiðsöguréttindi.
Umsóknarfrestur er til 9. janúar og er áætlað að kennsla hefjist í enda janúar. Kennt verður á dagtíma alla virka daga, auk þess verða farnar vettvangsferðir einstaka laugardaga. Kennt er í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ og fer kennslan fram á íslensku.
Megináhersla er lögð á náttúru, menningu og sögu Reykjanesskagans og nágrennis, auk þess sem áhersla er lögð leiðsögutækni og hagnýta þjálfun fyrir starfið í vettvangsferðum.
Námið er áhugavert fyrir þá sem hafa áhuga á að starfa sem leiðsögumenn á Reykjanesi og nágrenni, það nýtist einnig vel þeim sem starfa nú þegar í greininni, m.a. starfsfólki ferðaskrifstofa, upplýsingamiðstöðva, hópferðafyrirtækja, gestamóttöku hótela o.s.frv. Einnig fyrir þá sem vilja bara læra meira um svæðið.
Námið er samtals 22 einingar og skiptist í tvennt: Kjarna og svæðisbundið leiðsögunám. Nám í kjarna er 17 einingar. Nám í svæðisþekkingu eru 5 einingar og felur í sér sérhæfingu á Reykjanesi. Áætlað er að þeir nemendur sem hafa lokið bæði kjarna og svðisbundinni leiðsögn útskrifist í júní 2012.
Greiðslur
Staðfestingargjald skal greiðast fyrr 9. janúar kr. 15.000. Allt námsgjaldið skal vera greitt viku fyrir upphaf námsins þ.e. 23. janúar. Verð fyrir allt námið er kr. 232.000. Kostnaður vegna vettfangsferða er innifalinn en nemendur greiða sjálfir fyrir mat í ferðum. Námsgögn eru ekki innifalin í skólagjöldum. þeir nemendur sem ekki eru í fullu námi greiða kr. 9.500 fyrir hverja einingu sem þeir eru skráðir í. Inntökupróf í erlendum tungumálum kostar 9.000 kr.
Ath. stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til námsins. Þeir sem eru atvinnulausir geta athugað með styrk hjá Vinnumálastofnun.
Verð: 232.000 kr.
Til bakaDeila á Facebook







Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum