Fagnám í umönnun fatlaðra

Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.

Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fatlaðra en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum fyrir fatlaða. Það getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda. Breyttar áherslur í starfi kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.

Námið spannar 324 klukkustundir en 164 stundir eru með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun).  Mögulegt er að meta námið til 16 eininga á framhaldsskólastigi.

Námið er blanda af verklegu námi, fyrirlestrum og verkefnavinnu.

Námsþættir:
Velferðarþjónustan og hugmyndafræði fötlunar
Fatlanir og þjónustuþörf
Erfðir og þroski
Mannréttindi og siðferði
Geðsjúkdómar og lyf
Lífstíll og heilsa
Samskipti og samvinna
Starfið og námið
Áföll og afleiðingar
Framkvæmd þjónustu við fatlað fólk
Lokaverkefni
Starfsþjálfun

Markmið

Að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fatlaðs fólks til að efla lífsgæði þeirra og virkni.

Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.

Fyrirkomulag

Á Teams í fjarnámi og í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 3. hæð. Kennt verður seinni part dags tvo daga í viku í dreifnámi og einn laugardag í mánuði. Námið er í heildina 324 klukkustundir.

Engin lokapróf eru en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 16 eininga á framhaldsskólastigi.

Námsmat:

Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.

Tími:

Hefst 16. september og lýkur þann 4. desember 2024

Hátíðleg útskrift á sal 18. desember 2024

Nánari upplýsingar um námið veita Nanna Bára og Hólmfríður í síma 4217500 í tölvupósti namskeid@mss.is  

Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið. 

Cena: 65.000
Time period: 16. września - 4. grudnia

Apply
Fagnám í umönnun fatlaðra