Menntastoðir - Fjarnám

Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir frumgreinadeildir Keilis, Bifrastar og H.R.
Auk þess má meta námið sem hluta af bóklegum greinum í iðnnámi. Lokamarkmið Menntastoða er fyrst og fremst að námsmenn auki færni sína í þeim námsþáttum sem kenndir eru þannig að þeir geti tekist á við nám við frumgreinadeild háskóla, þ.e. uppfylli viðmið á þrepi tvö.

Markmið eru að námsmaður:
• þekki þær leiðir sem henta honum til náms
• hafi jákvæð viðhorf gagnvart áframhaldandi námi
• hafi bætt sjálfstraust sitt og aukið færni sína í samskiptum við aðra
• sé fær um að vinna verkefni sjálfstætt og skipulega, afla og miðla upplýsingum með ýmsu móti.

Námsgreinar:

• Samfélagsgrein
• Íslenska
• Stærðfræði
• Enska
• Upplýsingatækni
• Námstækni
• Danska
• Lokaverkefni

Námsmat: Verkefnaskil, virk þátttaka, kannanir eða símat.

Kennslufyrirkomulag: Fjarnám Menntastoða tekur um 10 mánuði og telur til allt að 60 eininga. Kennt er í lotum og er kennsla einn virkan eftirmiðdag í viku. Þátttakendur hafa val um hvort það mæti á staðinn, séu með á fjarfundi eða horfi síðar þar sem kennslan er tekin upp. Þessi leið hentar því fólki sem er í vinnu þar sem ekki er um dagskóla að ræða.

Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og atvinnuleitendur geta leitað til VMST.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita verkefnastjórarnir Hólmfríður og Kristín, eða náms- og starfsráðgjafar Inga og Steinunn, í síma 421-7500 eða á menntastodir@mss.is

Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar

Cena: 200.000
Time period: 9. sierpnia - 18. grudnia

Apply
Menntastoðir - Fjarnám