Ferðaþjónusta I
Ferðaþjónusta I er námsleið sem er ætluð starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni.
Námið leggur áherslu á mikilvægi þess að veita gæðaþjónustu og eykur þekkingu á mikilvægum atriðum þar að lútandi.
Markmið:
Náminu er ætlað að efla persónulega, faglega og almenna færni til að veita gæðaþjónustu og takast á við fjölbreytt úrlausnarefni í ferðaþjónustu. Í því felst að efla jákvæð viðhorf til starfsins, til eigin færni og til starfsgreinarinnar. Að námi loknu eiga þátttakendur að hafa betri forsendur til að taka að sér flóknari verkefni, vera sjálfstæðari í starfi.
Námsgreinar:
Gildi ferðaþjónustu
Þjónusta
Vinnusiðferði og hlutverk starfsmanns
Mismunandi þjónustuþarfir
Þjónustulund og samskipti
Fjölmenning
Innra og ytra starfsumhverfi
Verkferlar á vinnustað
Samfélags- og staðarþekking
Námsmat:
Engin lokapróf eru en lögð áhersla á verkefnaskil, 80% mætingu og virka þátttöku.
Kennslufyrirkomulag
Kennsla fer fram í húsnæði MSS alla virka daga frá 2. maí til 20. maí kl. 13:00 -16:00.
Námsleiðin Ferðaþjónusta I er metin af Menntamálaráðuneytinu til allt að 5 eininga styttingar á námi í framhaldsskóla.
Nánari upplýsingar veita:
Guðjónína – ina@mss.is
Sveindís - sveindis@mss.is
Sími 421 - 7500
Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið allt að 90%.
Cena: 20.000
Time period: 2. maja - 20. maja