Sterkari stjórnandi

Námskeið ætlað millistjórnendum. Samanstendur af fjórum námskeiðsdögum og  styrkir og eflir stjórnendur í störfum sínum. Lagt er upp með að hver dagur samanstandi af fyrirlestrum, umræðum, verkefnum, æfingum og hópavinnu.

Á námskeiðinu er meðal annars farið í eftirfarandi:

  • Starfsmannastjórnun og hlutverk millistjórnenda
  • Erfið starfsmannamál og vandmeðfarin málefni
  • Móttaka nýliða og jafningjastjórnun
  • Árangursríkari samskipti
  • Orkustjórnun og tímastjórnun

Kennt er einu sinni í viku eða eftir nánara samkomulagi hverju sinni. 

Powrót w kursach