Grunnmennt - Almennur bóklegur undirbúningur

Grunnmennt er ætlað fólki, 18 ára og eldri, sem vill styrkja sig í kjarnagreinunum (íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku) og undirbúa sig undir frekara nám (sem dæmi Menntastoðir). Í náminu er auk þess lögð áhersla á mikilvæga námsþætti fyrir daglegt líf og störf, svo sem námstækni, sjálfstyrkingu, samskipti og tölvu- og upplýsingatækni. Námið hentar vel fólki sem er með stutta formlega skólagöngu að baki, ekki verið lengi í námi, vill fara rólega af stað og fá góðan stuðning, hvatningu og leiðsögn frá upphafi.

Markmið

  • Að byggja upp grunn í íslensku, dönsku, ensku, stærðfræði og tölvum
  • Að stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms
  • Að auka sjálfstraust og færni í samskiptum við aðra
  • Að þjálfa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Að auðvelda nemendum að takast á við ný verkefni og / eða áframhaldandi nám

 Námsgreinar

  • Danska
  • Enska
  • Framsögn
  • Íslenska
  • Lokaverkefni
  • Markmiðasetning
  • Námstækni
  • Sjálfstyrking
  • Stærðfræði
  • Tölvur

Námsmat

Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka. 

Kennslufyrirkomulag
Námið er 300 kennslustundir og er kennt alla virka daga frá klukkan 08:30 – 12:15. Engin hefðbundin lokapróf eru en lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat, t.d. verkefnavinna, kannanir, hópavinna, umræður og rökræður. Þegar líður á kennsluönnina verður smám saman lögð áhersla á aukið sjálfstæði og öryggi nemanda í heimanámi. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Útskrift Grunnmenntar, ásamt fleiri námsleiðum, verður haldin hátíðleg um miðjan desember.

Við námslok er mögulegt að óska eftir mati á náminu í framhaldsskóla. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið allt upp að 15 einingum. 

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Kristín og Hólmfríður í síma 421-7500 eða grunnmennt@mss.is 

Cena: 87.000
Time period: 9. września - 5. grudnia

Apply
Grunnmennt - Almennur bóklegur undirbúningur