Velferðartækni

Fyrir hverja

Námið er ætlað þeim sem vilja vinna við eða hafa hug á að starfa við velferðaþjónustu og vilja öðlast aukna þekkingu og leikni í að takast á við nýjungar og tækni í faginu.

 

Markmiðið er að námsmenn fái aukna þekkingu og leikni til að takast á við tækniþróun í velferðarþjónustu sem snýr að:

  • nýsköpun í tækni sem nýtist við umönnun
  • verklegri aðstoð
  • hjálpartæki
  • skipulag á heimilum
  • þjálfun
  • endurhæfingu
  • sérkennslu
  • atvinnu með stuðningi

 

Kennsluaðferðir:

Lögð er mikil áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og þátttakendur taki virkan þátt

 

Námsmat
Engin lokapróf eru en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

 

Fyrirkomulag:
Á Teams í fjarnámi og í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 3. hæð. Kennt verður seinni part dags tvo daga í viku í dreifnámi og einn til tvo laugardaga. Námið er í heildina 40 klukkustundir.

 

Verð:

17.000 kr.

Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið. 


Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar

 

Tími:
Hefst 9. september og lýkur þann 8. nóvember 2024.

 

Nánari upplýsingar:

Nanna Bára og Hólmfríður í síma 4217500 í tölvupósti namskeid@mss.is

Cena: 17.000
Time period: 9. września - 8. listopada

Apply
Velferðartækni