Notendaráð fatlaðs fólks

Vilt þú taka þátt í notendaráði fatlaðs fólks í Reykjanesbæ?


Óskum eftir fólki sem vill starfa í notendaráði og hafa þannig áhrif á málefni fatlaðs fólks hjá Reykjanesbæ. Starf notendaráðsins, sem eingöngu er skipað fötluðu fólki, er að gefa álit sitt á stefnumótun um málefni fatlaðs fólks í Reykjanesbæ ásamt því að taka upp mál að eigin frumkvæði.

 

Undanfari setu í notendaráði er námskeið þar sem farið er yfir umhverfið sem notendaráðið mun starfa í s.s. lög, stjórnsýsla o.fl.


Námskeiðið hefst 17. apríl frá kl. 16-17 og verður 4 skipti.

Umsóknarfrestur í notendaráðið er til 1. mars og skal sækja um á mss.is eða í síma 421-7500. 

 

Kennari námskeiðsins er Tinna Kristjánsdóttir, þroskaþjálfi og ekkert gjald er fyrir þátttöku á námskeiðinu. 

Frekari upplýsingar veitir Jón verkefnastjóri námskeiðsins í gegnum tölvupóstfangið jonkp87@gmail.com

Cena:
Time period: 17. kwietnia - 8. maja

Apply
Notendaráð fatlaðs fólks