Meðferð matvæla
Námskeið fyrir þá sem starfa við eða hafa hug á að starfa við meðferð matvæla hvort sem er í mötuneytum, veitingastöðum eða matvælavinnslu.
- Matvælaörverufræði
- Innra eftirlit, HACCP/GÁMES
- Gerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkarnir
- Að auka hollustu máltíða og tilbúinna matvæla
- Geymsluþol, skynmat, vöruþekking
- Ofnæmi og óþol
- Þrif og sótthreinsun
Námsmat: 80% mætingarskylda og virk þátttaka
Tími: Mánudagar, miðvikudagar og fimmtudagar frá kl. 13:00 -15:40
Nánari upplýsingar veita Monika, monika@mss.is og Nanna Bára, nanna@mss.is - síma 421-7500
Námskeiðið getur einnig verið á ensku og pólsku
Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur - VSFK býður fimm félagsmönnum sínum á námskeiðið en sækja þarf um hjá vsfk@vsfk.is
Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið allt að 90%.
Verð: 15.000
Tímabil: 1. mars - 26. mars
