Að lesa og skrifa á íslensku

Að lesa og skrifa á íslensku er námsleið fyrir fullorðna einstaklinga af erlendum uppruna sem er ólæst eða illa læst á latneskt letur.

Námsþættir og áherslur í námi

Áhersla er á grunnfærni í íslensku og að auka hæfni námsmanna til að lesa og skrifa á íslensku og öðlast öryggi í framburði íslenskra hljóða og orða. Nemendur læra einfaldan grunnorðaforða sem nýtist í daglegu lífi og þjálfa sig í einfaldri setningagerð. Æft er talað mál, skilning, lestur og ritun einfaldra texta og setninga. Tölur, tákn og greinamerki eru einnig þjálfuð í náminu í samblandi við hljóð- og stafa innlögn.

Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru nýttar í náminu og mikil áhersla er á að nýta tölvur, snjalltæki og námsforrit í náminu.

Námsmat

Einhver heimavinna fylgir náminu, breytileg eftir námsþáttum og einstaklingum. Í lokin er staða nemenda metin. 

Kennslufyrirkomulag

Námsleiðin verður kennd fjóra daga í viku frá kl. 13:00-15:30.

Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar veita Kristín og Sveindís í síma 421-7500 eða kristin@mss.is / sveindis@mss.is 

Price: 31.000 ISK
Time period: January 23. - March 23.

Apply
Að lesa og skrifa á íslensku