Tæknilæsi og tölvufærni - á íslensku
Markmið með náminu er að auka tæknilæsi og tölvufærni námsmanna með það að leiðarljósi að efla hæfni einstaklinga í starfi. Áhersla er á að gera nemendur færari í að takast á við tækniframfarir og breytingar sem orðið hafa í atvinnulífinu með tilkomu nýrra tækni og tækja.
Markmið námsins er að:
- Auka tæknilæsi og tölvufærni námsmanna með það að leiðarljósi að efla hæfni einstaklinga til að takast á við breytingar og undirbúa þá þannig til að halda í við tækniframfarir í atvinnulífinu.
- Efla skilning á grunnþáttum stafræns umhverfis og grunnhæfni í stafrænu vinnuumhverfi samtímans.
- Veita námsmönnum hæfni og trú á eigin getu til að vinna við upplýsingatækni og í stafrænu umhverfi á þann hátt að þeir geta haft áhrif á vinnuumhverfi sitt með einföldum aðgerðum.
- Styrkja stöðu námsmanna á vinnumarkaði og veita þeim greiðari aðgang að fjölbreyttari störfum.
Námsþættir
Fjarvinna og fjarnám
Sjálfvirkni og gervigreind
Skýjalausnir
Stýrikerfi
Tæknifærni og tæknilæsi
Öryggisvitund
Námsmat
Engin lokapróf eru en lögð er áhersla á verkefnavinnu, 80% mætingu og virka þátttöku.
Kennslufyrirkomulag
Námsleiðin er 60 kennslustundir að lengd og nám stundað þrisvar í viku þriðjudaga og miðvikudaga kl. 17:00-20:00, og laugardaga kl. 9:00-12:40 í húsnæði MSS.
Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar veita Hrannar og Hólmfríður í síma 421-7500 eða á hrannar@mss.is
Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar.
Price: 19.000 ISK
Time period: February 26. - April 12.
