Enskunám fyrir byrjendur
Námskeiðið er ætlað byrjendum í ensku. Grunnorðaforði er þjálfaður á fjölbreyttan hátt og farið er í einföld undirstöðuatriði í málfræði.
Áhersla er á einfaldan orðaforða sem nýtist í daglegu lífi og er unnið með hann í gegnum rit- og talmál.
Námið fer fram á íslensku og ensku.
Kennslufyrirkomulag:
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00-19:00 og námskeiðið er 24 kennslustundir.
Nánari upplýsingar veita:
Diana Sól Aleksandrsdóttir diana@mss.is
Áslaug Bára Loftsdóttir aslaug@mss.is
*Farið er af stað með námskeiðið þegar lágmarksfjölda þátttakenda hefur verið náð.
Price: 35.000 ISK
Time period: February 14. - March 9.
