Meðferð matvæla - Fjarnám

Viltu kynna þér matvælaöryggi?

Öryggi og fagleg þekking í meðhöndlun matvæla er afar mikilvæg í allri matvælavinnslu. Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa eða hyggjast starfa við matvælavinnslu, svo sem í eldhúsum, á veitingastöðum, við framreiðslu matvæla eða önnur störf þar sem unnið er með mat.

Vegna góðra viðbragða bjóðum við aftur upp á námskeiðið í fjarnámi.

Námið fer fram 21. september til 2. nóvember 2026. Kennsla er á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:00–19:00. Nemendur fylgjast með kennslu í gegnum netið, hver á sínum stað. Upptökur verða aðgengilegar fyrir þá sem ekki geta verið með í rauntíma.

Námsþættir:

  • Matvælaörverufræði
  • Innra eftirlit, HACCP/GÁMES
  • Gerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkarnir
  • Að auka hollustu máltíða og tilbúinna matvæla
  • Geymsluþol, skynmat, vöruþekking
  • Ofnæmi og óþol
  • Þrif og sótthreinsun

Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. 

Námsmat:
Virk þátttaka í náminu.

Nánari upplýsingar veita:

Jóhanna María og Hólmfríður
*Sím 4217500
*Netfang namskeid@mss.is  

Styrkir vegna skólagjalda:
Hægt er að sækja um styrk til fræðslusjóða stéttarfélaga vegna skólagjalda. Leitið upplýsinga hjá ykkar stéttarfélagi.

Námið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar að kostnaðarlausu - skráning á heimasíðu Starfsmenntar

Price: 20.000 ISK
Time period: September 21. - November 2.

Apply
Meðferð matvæla - Fjarnám