Skref fyrir skref – Menntagrunnur
Skref fyrir skref – Menntagrunnur er nýtt og einstaklingsmiðað námsúrræði sem hefst hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum á vorönn 2026. Námið er ætlað ungu fólki af erlendum uppruna (18–24 ára) sem vill sækja sér frekara nám eða auka möguleika sína á vinnumarkaði.
Námið byggir á samþættingu þriggja námskráa og einstaklingsmiðaðrar íslenskukennslu. Námsfærni þátttakenda er mismunandi. Sumir þátttakendur kunna hvorki að lesa né skrifa á íslensku, eða jafnvel á sínu móðurmáli, og er því rík áhersla á persónulega íslenskukennslu. Í upphafi náms verða því haldin stöðupróf í íslensku.
Markmið námsleiðar er að:
- efla sjálfstraust, félagsfærni og grunnfærni þátttakenda
- gera þátttakendur meðvitaða um ríkjandi viðmið, reglur og samskiptavenjur sem einkenna íslenskt skólasamfélag
- auka færni þátttakenda í íslensku, lestri, námstækni, ritun, stærðfræði, upplýsingatækni og lífsleikni
- mæta þátttakendum á eigin forsendum og veita þeim stuðning í öruggu námsumhverfi með það með það að markmiði að þeir geti haldið áfram námi eða komist út á vinnumarkað
Kennslufyrirkomulag og skipulag náms
Kennslan fer fram í litlum hópum í húsnæði MSS. Lögð er áhersla á heimastofu og persónulegt nám þar sem þátttakendur hafa greiðan aðgang að kennurum, námsráðgjöfum og stuðningsaðilum.
Námið spannar eina önn og verður kennsla alla virka daga frá 08:30- 12:50.
Verð á námsleiðinni: 115.000kr.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna
Price: 115.000 ISK
Time period: February 20. - May 20.