19. nóvember 2019

Raunfærnimat í verslunarfulltrúa

Raunfærnimat í verslunarfulltrúa

Vinnur þú við verslun og/eða þjónustu eða hefur reynslu af því? Langar þig til að styrkja stöðu þína á vinnumarkaði eða bæta við menntun þína? Ef þú ert orðin/orðinn 23 ára og hefur unnið verslunar- og þjónustustörf í þrjú ár eða lengur og ekki lokið formlegri menntun, þá ættir þú að lesa áfram og kynna þér málið.

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) býður nú í nóvember upp á raunfærnimat í Verslunarfulltrúa.

 

Raunfærnimat er gagnleg leið fyrir fólk til þess að kortleggja færni sína og auka möguleika sína á ýmsum sviðum. Margir einstaklingar á vinnumarkaðnum hafa í gegnum áralanga reynslu, byggt upp umtalsverða færni en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem er hægt og vert er að skoða og meta. Raunfærnimat er ferli þar sem metin er þekking og færni á ákveðnu sviði sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi. Allt nám er verðmætt og því er mikilvægt að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað.

 

Matið fer þannig fram að þátttakendur mæta nokkrum sinnum í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4, Reykjanesbæ. Eftir kynningu og einstaklingsviðtal við náms- og starfsráðgjafa, hefst matsferlið. Gerð er færniskráning og í kjölfarið fer fram matssamtal þar sem fagaðili metur stöðu viðkomandi í faginu.

 

Matið er staðfest með vottun og skráningu metinna eininga í Innu, sem er skráningarkerfi framhaldsskólanna. Við raunfærnimat í Verslunarfulltrúa eru þátttakendur metnir skv. námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins til allt að 25 framhaldsskólaeininga. Markmiðið er að þeir geti stytt nám í framhaldinu og sýnt fram á reynslu og færni í starfi eða atvinnuumsókn. Eftir matið geta þátttakendur tekið ákvörðun um að ljúka við það sem uppá vantar í námi, nýtt matið sem stökkpall í annað nám eða nýtt það til að skoða hvar þeir eru staddir og hvert þeir vilja stefna með hliðsjón af því.

 

Á undanförnum árum hafa rúmlega fjögur þúsund einstaklingar farið í gegnum raunfærnimat í ýmsum iðn- og verkgreinum og almennri starfshæfni hjá símenntunarmiðstöðvum um allt land. Það er samdóma álit þeirra að það hafi styrkt stöðu þeirra og sjálfstraust. Margir hafa í kjölfarið lokið löggiltu námi.

 

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Björk, náms- og starfsráðgjafi hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum:
Sími 412-5940 / 421-7500
Tölvupóstur: steinunn@mss.is 

 

Til baka í fréttir