20. desember 2021
Útskrift í Tæknilæsi og tölvufærni 3. desember 2021
Föstudaginn 3. desember 2021 útskrifuðust 14 nemendur úr Tæknilæsi og tölvufærni: vinnuumhverfi samtímans.
Markmið með náminu er að auka tæknilæsi og tölvufærni námsmanna með það að leiðarljósi að efla hæfni einstaklinga í starfi. Áhersla er að gera nemendur færari í að takast á við tækniframfarir og breytingar sem orðið hafa í atvinnulífinu með tilkomu nýrra tækni og tækja.
Þátttakendur lærðu um
- Fjarvinnu og fjarnám
- Sjálfvirkni og gervigreind
- Skýjalausnir
- Stýrikerfi og stillingar stýrikerfa
- Tæknifærni og tæknilæsi
- Öryggisvitund og netöryggi
Traustur leiðbeinandi með mikla þekkingu á upplýsingatækni bauð þátttakendum upp á lifandi og skemmtilega námsleið, þar sem mikið var rætt og skrafað um upplýsingatæknimál framtíðarinnar.