Starfsréttindanámskeið dagforeldra
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kynnir með stolti í samvinnu við Reykjanesbæ starfsréttindanámskeið dagforeldra.
Allir þeir sem hafa hug á að starfa sem dagforeldrar þurfa að ljúka við starfsréttindanámskeið dagforeldra. Núna hefur MSS tekið við þessu mikilvæga námskeiðshaldi.
Til þess að allir hafi jafnt tækifæri til náms verður námskeiðið kennt í gegnum forritið Zoom.
Brunavarnafræðsla fer fram hjá Brunavörnum Suðurnesja. Utan Suðurnesja fer hún fram í því bæjarfélagi sem við á.
Tímabil
Fimm vikna námskeið sem hefst um leið og næg þátttaka hefur náðst.
Kennsla fer fram í gegnum samskiptaforritið Zoom.
Mánudagar og miðvikudagar klukkan 17:00 – 20:30
Laugardagar klukkan 09:00 – 12:20
80% mætingarskylda
Upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Bára (aslaug@mss.is) eða í síma 421-7500
Verð
101.000.kr
Styrkir vegna námskeiðsgjalda:
Hægt er að sækja styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóðs stéttafélaga og VMST
Reykjanesbær greiðir þátttökugjöld að fullu fyrir sína umsækjendur
Grindavíkurbær greiðir 75% af námskeiðsgjaldi
Tímabil: Haust 2023
Verð: 101.000
Tímabil: 2. september - 7. október
