Olíumálun hjá Eybjörgu

Hið sívinsæla olíumálunarnámskeið Eybjargar er komið aftur. Skráðu þig sem fyrst til að tryggja þér sæti. Fyrri námskeið hafa fyllst hratt.


Um Eybjörgu:

Eybjörg er sjálfmenntuð listakona sem lærði mest þegar einn samnemandi hennar, Tobba Óskarsdóttir, bauð henni að læra olíumálningu í skiptum fyrir stærðfræðikennslu. Þetta hefur leitt til þess að nú hefur Eybjörg málað fjölda malverka sem hún hefur selt með góðum árangri.


Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er sérstaklega hannað fyrir byrjendur. Þátttakendur munu kynnast þeim áhöldum og efnum sem nauðsynleg eru til að mála olíumálverk. Þeir munu læra að nota íblöndunarefnin á réttan hátt og fá tækifæri til að mála sitt eigið olíumálverk.


Markmiðið er að þátttakendur geti í lok námskeiðs:

·        Nefnt öll áhöld og efni sem þarf til að mála með olíu

·        Notað íblöndunarefnin rétt

·        Málað málverk með olíumálningu


Þátttakendur taka heim með sér olíumálverk eftir sjálfa sig.


Kennslufyrirkomulag:

Kennt verður í húsnæði MSS tvö síðdegi kl. 17:00-20:00, 16. og 18.september.

Samtals eru þetta sex klukkustundir.

Allt efni innifalið í verðinu – þú bara mætir.


Hámarksfjöldi:

15 þátttakendur.


Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar veita Díana Karen og Hólmfríður, í síma 421-7500 eða á namskeid@mss.is


Þátttakendur eru hvattir til að athuga hvort stéttarfélag þeirra taki þátt í greiðslu.

Verð: 30.000
Tímabil: 16. september - 18. september

Sækja um
Olíumálun hjá Eybjörgu