Áföll og fíkn
Fjallað verður um tengls áfalla og fíknar. Undanfarin ár hefur orðið æ ljósara að undir fíkn fellur fleira en sókn í vímuefni. Ýmiss konar hegðun getur fallið undir fíkn, eins og til dæmis spilafíkn, átraskanir eða reiðiköst, svo eitthvað sé talið. Þeir sem hafa lengst unnið með fólki í vanda, eru farnir að sjá þræði sem liggja milli þessara tveggja póla, áfalla og fíknar. Þeir sem lifa í miðri hringiðu áfalla og fíknar eiga oft erfitt með að sjá heildarmyndina og þar með þörfina á að leita sér hjálpar. Þess vegna situr fólk oft fast í gildru þessarar hringiðu og hver kynslóðin eftir aðra vex upp í sömu stöðunni.
Námskeiðið er byggt upp á bók eftir Claudiu Black sem leiðbeinandi, Sigurlína Davíðsdóttir, þýddi.
Kennslufyrirkomulag:
Námskeiðið fer fram í húsnæði MSS, dagana 10.sep, 17.sep, 24.sep og 1.október klukkan 17:00 - 20:00
100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Leiðbeinandi er:
Sigurlína Davíðsdóttir, prófessor emeritus í uppeldis- og menntunarfræði.
Námskeiðið gefur: 15 punktar
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður og Linda í síma 421-7500 eða á netfangið namskeið@mss.is
Verð: 32.500
Tímabil: 10. september - 1. október
