Matreiðslunámskeið
Á matreiðslunámskeiði Fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks verður kennt að elda einfalda og bragðgóða rétti sem hitta í mark. Unnið er eftir myndrænum og skrifuðum uppskriftum og munnlegum fyrirmælum eftir þörfum þátttakenda. Kennt verður í kennslueldhúsi Akurskóla í Innri-Njarðvík.
Kennt verður á miðvikudögum kl. 16-18 og námskeiðið hefst 3. september og lýkur 1. október.
Verð: 6.000 kr.
Kennari: Sigurður Björgvinsson
Nánari upplýsingar veitir Jón Pétursson í síma 848-2436 eða í tölvupósti á netfangið jonkp87@gmail.com
Verð: 6.000
Tímabil: 3. september - 1. október
