Áhugasviðsgreining

Áhugasviðsgreining hjálpar þér að átta þig betur á hvaða nám eða störf gætu hentað þér.

Áhugasviðsgreining hjálpar þér að átta þig betur á áhuga þínum, styrkleikum og því hvaða nám eða störf gætu hentað þér. Markmiðið er að auka sjálfsþekkingu og auðvelda þér að taka upplýstar ákvarðanir um framtíðina.


Áhugasviðsgreining getur verið gagnleg ef þú ert:

  • að velta fyrir þér næstu skrefum í námi eða starfi
  • í vafa um hvað hentar þér best
  • að íhuga breytingar
  • að leita staðfestingar á því hvort þú sért á réttri leið


Hvað getur áhugasviðsgreining gefið þér?

Áhugasviðsgreining getur hjálpað þér að:

  • koma skipulagi á áhugasvið þín
  • auka sjálfsþekkingu
  • fá hugmyndir að störfum og starfgreinum sem gætu hentað
  • tengja áhuga þinn betur við nám og starfsval
  • sjá skýrar hvaða næstu skref gætu hentað þér


Áhugasviðsgreining hjá MSS

Hjá MSS er hægt að taka áhugasviðskönnun sem heitir Bendill og er íslensk áhugasviðskönnun fyrir einstaklinga sem eru að huga að námi eða starfi. Könnunin er rafræn og í lok hennar færðu myndrænar niðurstöður sem geta nýst við að skoða mögulegar námsleiðir og starfssvið. Kostnaður við Bendil er kr. 8.000



Ráðgjöf og næstu skref

Gott er að fara yfir niðurstöður úr áhugasviðsgreiningu með náms- og starfsráðgjafa. Ráðgjafi getur aðstoðað þig við að túlka niðurstöðurnar, skoða möguleg störf og námsleiðir og finna hvaða leiðir henta þér best.

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um áhugasviðsgreiningu eða kanna hvort hún henti þér geturðu haft samband við náms- og starfsráðgjafa MSS.

Steinunn Björk Jónatansdóttir í síma 412 5940 / steinunn@mss.is 
Inga Sif Ingimundardóttir í síma 412-5958 / inga@mss.is