Nám

Nám getur verið hluti af endurhæfingu einstaklinga allt eftir því hvar áhugi og gildi einstaklinga liggja. Dæmi eru um að einstaklingar séu í framhaldsskóla námi, iðnnámi, háskólanámi, styttri námsleiðum eða námskeiðum víðsvegar um landið

Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjafar vinna sem stuðningur við þátttakendur og leiðbeina við þá ákvarðanatöku sem þeir standa frammi fyrir, bæði hvað varðar nám og störf. Frekari upplýsingar um hvaða þjónustu þátttakandi getur fengið frá náms- og starfsráðgjöfum má finna hér

Hjá MSS eru í boði ýmsar námsleiðir. Ávallt er haft að leiðarljósi, á öllum leiðum, að unnið sé af fagmennsku, metnaði, hlýju og að námið sé eftirsóknarvert, hvetjandi og áhugavert. Hér eru dæmi um nokkrar námsleiðir innan MSS.