Reglur um notkun gervigreindar í námi hjá MSS
Reglur um notkun gervigreindar í námi hjá MSS
1. Almenn notkun gervigreindar í námi
Nemendur Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum skulu fylgja fyrirmælum kennara varðandi notkun gervigreindar í námi og við úrlausn verkefna. Ef nemandi er í vafa um hvort, hvernig eða í hvaða mæli heimilt er að nota gervigreind skal hann leita skýrra leiðbeininga hjá kennara áður en hann heldur áfram með verkefni.
2. Heimildanotkun, áreiðanleiki og gagnsæi
Notkun gervigreindar fellur undir sömu reglur og notkun allra annarra heimilda og aðstoðar í námi.
· Nemendur skulu ávallt fylgja viðurkenndum aðferðum við skráningu og frágang heimilda.
· Ef gervigreind er notuð að höfðu samráði við kennara skal nemandi skýrt gera grein fyrir:
o hvernig gervigreindin var notuð í verkefninu,
o hvaða gögn eða efni hún skilaði, og
o hvernig nemandi sannreyndi áreiðanleika upplýsinga sem fengnar voru úr gervigreindarforritum.
Allar tilvísanir skulu fylgja viðurkenndum stöðlum (t.d. APA, MLA eða þeim sem kennari tilgreinir).
3. Brottfall eða ógilding verkefna
Ef nemandi notar gervigreind án heimildar, brýtur gegn fyrirmælum kennara eða notar tæknina á rangan hátt getur kennari metið verkefnið ógilt. Slík notkun getur einnig haft áhrif á verkefnaeinkunn, námsmat og aðrar viðeigandi agaviðurlög samkvæmt reglum skólans.
5. maí 2026
Forstöðumaður og persónuverndarfulltrúi
Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum