Námstækni

Námstækni er verkfæri námsmannsins til að ná árangri í námi. Hún felst í að þekkja og tileinka sér aðferðir sem styðja við nám

Við lærum öll á ólíkan hátt og því er engin ein námstækni sem hentar öllum. Sumir læra best með því að hlusta, aðrir með því að lesa, skrifa, sjá eða prófa sjálfir. Fyrir suma henta hugarkort vel en aðrir kjósa glósur, skýrt skipulag eða að vinna verkefni í litlum skrefum.

 

Námstækni er verkfæri námsmannsins til að ná árangri í námi. Hún felst í að þekkja og tileinka sér aðferðir sem styðja við nám, auka yfirsýn og auðvelda vinnu með námsefni og verkefni. Mikilvægt er að hafa í huga að það sem hentar einum hentar ekki endilega öðrum og því skiptir máli að hver og einn finni þá leið sem hentar best.

Hjá náms- og starfsráðgjöfum MSS getur þú fengið aðstoð við að skoða mismunandi námsaðferðir og finna námstækni sem hentar þér. Þar er meðal annars hægt að fá stuðning við að skipuleggja námið, halda utan um verkefni og skilafresti, efla einbeitingu og finna leiðir til að vinna markvisst að námsmarkmiðum.

 

Námstækni felst meðal annars í að:

  • skipuleggja námið og halda utan um verkefni og skilafresti
  • setja sér raunhæf markmið og vinna markvisst að þeim
  • finna leiðir til að bæta einbeitingu og draga úr frestun
  • tileinka sér aðferðir til að lesa, glósa og vinna úr efni
  • skipta stórum verkefnum niður í smærri og viðráðanlegri skref
  • finna námsaðferðir og vinnulag sem henta hverjum einstaklingi


Frekari upplýsingar um námstækni veita: 

Steinunn Björk Jónatansdóttir í síma 412 5940 / steinunn@mss.is
Inga Sif Ingimundardóttir
í síma 412-5958 / inga@mss.is

 

Lærðu á lesblinduna