Upplýsingar um réttindi og skyldur í námi og þjónustu hjá MSS
Upplýsingar um réttindi og skyldur í námi og þjónustu hjá MSS
Nemendur MSS hafa rétt á því að leiðbeinendur og kennarar leggi fram kennsluáætlun sem að staðið er við. Þar komi fram námsmarkmið og hvað þarf til að uppfylla námslok.
Nemendur bera ábyrgð á eigin námi, framkomu sinni, umgengni og samskiptum sínum við aðra nemendur og starfsfólk.
Nemendur og aðrir sem sækja nám, námsleið eða námskeið á vegum MSS hafa rétt á að láta skoðun sína í ljós. Ætíð skal gæta réttmætis þegar málin eru skoðuð og lagt upp með að ágreiningsefni séu rædd af virðingu og sanngirni þar sem markmiðið mun ætíð vera að leita lausna innan stofnunarinnar sé sá möguleiki fyrir hendi.
Starfsfólk og einstaklingar sem starfa fyrir MSS bera ábyrgð á hegðun sinni og framkomu og skal fylgja reglum jafnt laga- og siðferðislega. Einnig skal hafa siðareglur viðkomandi fagfélaga til hliðsjónar.
Komi upp sú staða að starfsfólk og verktakar þurfi að leita réttar síns. Skal ætíð byrja á því að leita til forstöðumanns.
Ágreiningsmál skulu ætíð berast með skriflegum og rekjanlegum hætti. Við vinnslu mála skal taka mið af stjórnsýslulögum um framhaldsfræslu nr. 27/2010.
Komi upp ágreiningur á milli nemenda, milli nemanda og kennara og/eða annarra starfsmanna og ekki tekst að finna lausn á málinu skal því vísað til viðeigandi verkefnastjóra. Ef að einhverjum ástæðum er ekki hægt að leita til verkefnastjóra eða verkefnastjóri getur ekki leyst úr málinu skal leita til forstöðumanns. Hið sama gildir komi fram brot á reglum eða brot á almennu hátterni.
Þegar máli er vísað til forstöðumanns skal það vera gert skriflega. Forstöðumaður tryggir að nægilegar upplýsingar liggi fyrir og aðilum máls gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ákvörðun er tekin. Niðurstaða skal byggð á málefnalegu og hlutlægu mati og leitast skal við að ná sáttum ef unnt er. Niðurstaða forstöðumanns skal vera rökstudd. Niðurstaða forstöðumanns telst endanleg innan MSS.
Komi upp ágreiningur milli nemenda og kennara um mat á úrlausn/lokaeinkunn sem ekki tekst að leysa þeirra á milli geta nemendur snúið sér til forstöðumanns og óskað eftir mati sérstaks matsmanns. Þá skal kveða til óháðan matsaðila sem metur námsmatið. Úrskurður matsmanns gildir og fer ekki áfram til æðra stjórnunarvalds.
Ef ofangreint dugar ekki nemendum skal vísað til næsta stjórnsýslusviðs, mennta- og barnamálaráðuneytisins og til viðkomandi stéttafélags til að fá aðstoð.