15. desember 2009
21 nemandi útskrifast úr grunnnámi skólaliða
Frá janúarmánuði til nóvember 2009 stóð MSS fyrir 70 kennslustunda grunnnámi skólaliða í nágranabyggðum Reykjanesbæjar. Þátttakendur voru frá Vogum, Grindavík, Garði og Sandgerði. Í lok nóvember útskrifaðist svo hópurinn, samtals 21 nemandi.
Um var að ræða tvo hópa, einn frá Garði og Sandgerði sem stundaði námið til skiptist í sveitarfélögum sínum og annan frá Vogum og Grindavík sem sótti sitt nám í Vogana. Flestir þátttakendur voru með báðar annirnar. Þeir komu úr ýmsum áttum m.a frá grunnskólum, leikskólum og íþróttahúsi og fóru í gegnum hina ýmsu fræðslu tengda börnum eins og t.d. uppeldi og umönnun, aga og reiðistjórnun, mat og næringu og leiki barna. Það er skemmtilegt að geta þess að eftir námskeiðin um leiki barna skipulagði Stóru Vogaskóli markvisst útileiki yngri barna með góðri þátttöku eldri skólanema þar sem færri komust að en vildu. Meðfyljandi er mynd af hluta hópsins frá Vogum og Grindavík á útskriftardaginn. MSS óskar þátttakendum til hamingju með útskriftina.