3. desember 2009

Bókakonfekt

Bókakonfekt

Okkar árlega Bókakonfekt verður haldið í listasal Duushúsa sunnudaginn 6. desember og hefst klukkan 13:30. Fimm höfundar lesa upp úr nýúkomnum bókum og inn á milli upplestra verður boðið upp á tónlist. 

Þetta er í 10. sinn sem boðið er upp á Bókakonfekt og það er sannarlega tilefni til að halda upp á það. Upplesarar hafa aldrei verið fleiri en í ár og eru bæði höfundarnir og sögurnar bæði fjölbreytt og ólík.
 
 
Tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson les úr ævisögu Vilhjálms Vilhjálmssonar, Söknuður, Guðmundur Brynjólfsson les úr fyrstu bók sinni, unglingabókinni Þvílík vika, sem færði Guðmundi íslensku barnabókaverðlaunin, Ólafur Haukur Símonarson les úr skáldsögunni Fuglalíf á Framnesvegi, Vilborg Davíðsdóttir les úr skáldsögunni Auður, sem byggð er á ævi landnámskonunnar Auðar djúpúðgu og Vilborg hefur verið tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunana fyrir og blaðamaðurinn Guðrún Guðlaugsdóttir og Jón Böðvarsson lesa úr viðtalsbók Guðrúnar við Jón, Sá á skjöld hvítan.

Um tónlistarflutning sér hljómsveitin Talenturnar, sem skipuð er 7 hljóðfæraleikurum úr Kirkjukór Keflavíkurkirkju.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt í hléi og Eymundsson selur bækur höfundanna.

Bókakonfektið er samstarfsverkefni Bókasafns Reykjanesbæjar, menningarfulltrúa Reykjanesbæjar, Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum og Eymundssonar bókaverslunar og styrkt af Menningarráði Suðurnesja.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Til baka í fréttir