17. nóvember 2011

Dagur íslenskra tungu haldin hátíðlegur

Dagur íslenskra tungu haldin hátíðlegur

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í gær, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Nemendur, kennarar og starfsmenn MSS og Samvinnu komu saman í morgun í tilefni dagsins og var fjölmenni í Suðurnesjastofu við uppákomuna.
Flutt var stutt ágrip um Jónas og meðal annars lesin lýsing sem Konráð Gíslason hafði skrifað um hann. Þar var hann sagður stóreygður og móeygður, og verður því ekki lýst, hversu mikið fjör og hýra var í augum hans, þegar hann var í góðu skapi, einkum ef hann ræddi um eitthvað, sem honum þótti unaðsamt um að tala“. Þessi lýsing á ekki síður við um þá sem stunda nám hjá MSS þar sem gleðin er ávallt nálæg.
Nokkrir nemendur úr Grunnmenntaskólanum og Menntastoðum lásu ljóð í tilefni dagsins. Grazyna Kawa,  Sigurjón Valur Eiríksson, Antonio Aguilar og Sigurveig Bylgja Grímsdóttir fluttu ljóð eftir þekkta íslenska höfunda en Elísabet Nönnudóttir flutti frumsamið ljóð. Uppákoman skapaði skemmtilega stemningu í húsinu og verður eflaust endurtekin að ári, íslenskunni til heiðurs.

Til baka í fréttir