3. mars 2011

Eflum atvinnulífið - Öflug námskeið

Í síðustu viku var borinn út bæklingur inn á öll heimili og fyrirtæki á Suðurnesjum með námskeiðs- og fræðsluframboði sérsniðnu að atvinnulífinu. Að bæklingnum koma Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Keilir og Frumkvöðlasetrið á Ásbrú. Þar er að finna fjölbreytt framboð af ýmiskonar námskeiðum og fyrirlestrum sem fyrirtæki, starfsmenn, frumkvöðlar og aðrir áhugasamir geta nýtt sér.

Nú býðst gott tækifæri til að efla sjálfan sig, reksturinn og starfsfólkið eða viðskiptahugmyndina og styrkja stoðirnar með því að bæta við þekkinguna. Með því að smella hér má fá uppýsingar og skrá sig á þau námskeið sem MSS býður upp á. Upplýsingar um annað námsframboð í bæklingnum má fá hjá Keili og Frumkvöðlasetrinu.

Til baka í fréttir